Gleðileg jólin allir saman og takk fyrir okkur!
Jólin eru búin að vera nokkuð fín og þá er það bara að sprengja burt gamla árið og fagna nýju! Eftir það væri ég alveg til í að huga að heimferð en vitiði hvað, það er BARA mánuður í heimferð, finnst bara allt of langt þangað til, sérstaklega þar sem ég hef ekkert að gera eða neitt, mér mun alveg dauðleiðist! Heima er alltaf best, þar sem allt dótið manns er og já lífið manns! En ekki misskilja mig, finnst voða gott að koma á klakann! En svona er þetta bara stundum. Held að Jón Daníel vilji hvergi annars staðar vera en á Íslandinu.....hann getur bara flutt þangað þegar hann er 20 ára, held ég komi ekkert fyrr en ég fer á elliheimili 
Við erum svo að fara á jólaball á eftir niðrí íþróttahúsi og vá hvað mig langar ekki!!! Finnst þessi jólaböll alveg drepleiðinleg....en hvað gerir maður ekki fyrir barnið sitt
En ef ég þekki Jón Daníel rétt þá vill hann bara fara vegna þess að það er pizza í boði á ballinu, ekkert annað!!!!! Hann nennir pottþétt ekki að dansa kringum tréð eða neitt, hann er orðin svo mikill unglingur í sér, þannig það er best að mæta aðeins of seint, svona rétt þegar pizzan og jólasveinarnir eru að koma svo maður getur drifið sig burt stuttu seinna! Ef einhverjum finnst alveg ógurlega gaman á jólaböllum, þá megiði endilega fá barnið mitt lánað til að komast á eitt 
Svo er drengurinn minn rétt að detta í 6 ára aldurinn sem segir mér bara eitt!!! Vá hvað ég er að verða gömul.......ðssssss.............
Svo er það bara að finna sér eitthvað að gera hérna í janúar, ætla að reyna að komast suður eitthvað, svo ég mygli nú ekki alveg hérna í þorpinu.....hellst fyr en seinna og jafnvel líka bara 4 til 5 dögum áður en við fljúgum út, vera aðeins í borginni.
Talandi um ferðina heim, þetta á svo eftir að vera basl með töskurnar! Veit ekki hvort ég komi öllu draslinu í töskurnar sem við fengum í jólagjöf.....þetta er bara vesen....spurning um að vera bara í danmörku næstu jól!!??!!! já góð spurning!!!
Vonandi áttu þið góð jól og eigið góð áramót einnig.
Gleðilegt nýtt ár
margo..............out